Ef JÁJ á 1500 millur til að reiða fram kallar það á margar spurningar?

Tvær spurningar brenna á mér. Ef þetta er einföld hlutafjáraukning, afhverju er hlutaféð ekki lagt inní 365 hf? Ef JÁJ á 1500 milljónir lausar hvar fær hann þá peninga? Í silfrinu var hann aumur og með allt undir en núna á hann nóg af peningum? Það er mjög alvarlegt ef þessir menn JÁJ og félagar munu enn eiga tögl og haldir í fjölmiðlum á íslandi. Nú er nefnilega að koma tími þar sem fjölmiðlar þurfa að rannsaka þessa sömu aðila, hver var þeirra þáttur í þeim atburðum sem hafa leitt þjóðina á skuldaklafa með sjóði bankana(sem þeir stjórnuðu) tóma.


mbl.is Löngu ákveðin hlutafjáraukning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Sammála hverju orði. Finnst þetta bæði vafasamt og dularfullt.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 2.11.2008 kl. 21:56

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Tekið af bloggi Egils Helgasonar (Silfri Egils:)

Jón Gerald Sullenberger
2. nóvember, 2008 kl. 23.42

Sæll Egill þegar menn eru með fyrirtæki eins og Bonus sem er að velta
3 milljörðum á mánuði og þá er Aðföng ekki inn í þessu en það má reikna með að það sé svipað og hjá Bonus.

Svo eru þeir með krít hjá byrgjum í 30 til 90 daga það er hægt að gera markt með þessa veltu og þessi 1.5 milljarður tekur bónus 14 daga að fá í kassann. Eina leiðin til að stoppa þetta er að hætta að VERSLA Í BONUS.

Engin banki er að lána honum fjármagn enda ekkert til í bankakerfinu en hann þarf ekkert á banka að halda þar sem hann er með frítt fé í Bónus. ÞJÓÐIN VERÐUR AÐ STOPPA ÞETTA STRAX OG HÆTTA AÐ VERSLA Í BÓNUS.

Nánar hér.

Ef þetta er satt er ódýrara að versla í okurbúllunum en í Bónus. Þetta eru matarpeningarnir þínir (að öllum líkindum) sem maðurinn notar til að kaupa eignir landsins á brunaútsölu.

Theódór Norðkvist, 3.11.2008 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband