25.4.2007 | 14:15
90 milljónir
Eyddi 300 krónum og fékk 11,7 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2007 | 22:31
Það má alveg taka mark á Michelin
Ég hef nú ekki borðað á Noma en ég hef borðað á mörgum stöðum með Michelin stjörnur. Það klikkar ekki að fara eftir Michelin. Staðirnir sem þeir mæla með eru allir magnaðir. Fór td. til Prag fyrir ári og borðaði bara á stöðum sem mælt var með á netsíðunni hjá Michelin og hvílík veisla! Það má síðan notast við meðmæli og stjörnugjöf Michelin í öllum helstu löndum evrópu hið minnsta. Allavega hef ég notfært mér þetta m.a. í dublin, london, parís, barcelona og víðar.
Hef lengi velt því fyrir mér afhverju þeir hjá Michelin gefa íslenskum stöðum ekki stjörnugjöf? Nú eigum við þónokkura staði eins og La Primavera, Holtið, Grillið, Sjávarkjallarann, Hótel Búðir, VOX og Þrjá frakka sem hæglega ættu erindi inná lista Michelin.
Spurning um að senda þeim mail?
Noma talið 15. besta veitingahús heims | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2007 | 12:43
Á fleygiferð með Grantaranum og 1/2 Subway
Nú er sko alvöru átaK Í gangi. Fór til Grantarans í morgun og hann kann sko að láta mann púla. Maður hressist nú bara við átökin og þegar maður er búinn að sturta sig er maður eins og nýsleginn túskildingur Í fyrsta skipti á ævinni pantaði ég mér svo bara 1/2 subwaybát. Hvað gerir maður ekki fyrir árangurinn í ræktinni. Gullmoli frá Grant: ,,Borða 6 sinnum á dag og lítið í einu".
Ljóskan
Nú er allt að gerast í pólítíkinni. Jón Baldvin greyið kallar Þorgerði Katrínu ljósku og allt fer á annan endan. Mér finnst það nú ekkert niðrandi að kalla ljóshærðar konur ljóskur.
Slys í miðbænum
Hugmyndir um að endurreisa hornhúsin sem brunnu við Lækjargötu og Austurstræti eru að mínu mati mjög illa ígrundaðar. Hvað fáum við með því? Hverskonar afturhvarf er það og fortíðardýrkun? Hvernig liti td. Kaupmannahöfn út ef menn hefðu endurbyggt borgina í upprunalegri mynd eftir þá stórbruna sem urðu þar á 19. öld? Nútíminn gerir miklu meiri og aðrar kröfur um nýtingu lóða og húsakost. Húsin sem brunnu geymdu vissulega mikla sögu en endurbygging verður aldrei það sama og upprunalegu húsin. Það er hræsni að ætla að byggja húsin í upprunalegri mynd. Þau voru fyrir bruna allt annað en augnayndi. Hugsum um framtíðina og byggjum falleg hús sem uppfylla kröfur samtímans og framtíðarinnar. Það er allavega mín skoðun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2007 | 22:08
Hér sannast hið fornkveðna "að fallið er hátt af toppnum!"
Britney hugleiðir að gerast heimavinnandi húsmóðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 16:06
Það má ekki gleypa þetta alveg hrátt
Heildsöluverð á lyfjum það sama og á Norðurlöndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 12:52
Er þetta ekki kallað að taka fólk í rassgatið?
Mér finnst hreint með ólíkindum hvernig ár eftir ár geti bensín, lyf og matvælainnflytjendur okrað svo á landanum að manni hreinlega ofbýður. Kunnum við ekki að segja stopp. Hér finnst mér vera komin tími til að þjóðkjörnir fulltrúar þjóðarinnar láti til sín taka. Það er nefnilega alveg ljóst að svona þarf ástandið ekki að vera. Einhverjir eru að taka alltof feitt í vasann á þessum viðskiptum. Við sjáum td. að verð á raftækjum er ekki mikið hærra á íslandi en gengur og gerist en samt eru raftæki flutt til landsins á sama hátt og fyrrnefndir vöruflokkar. Síðan skilst mér að lyf sem framleidd eru hérlendis séu jafnvel dýrari hér en í nágrannalöndunum. Hver ætli séu rökin fyrir því?
Aðeins í Sviss eru lyf dýrari en á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.4.2007 | 18:00
Árni Johnsen rokkar feitt
Sjálfstæðisflokkur bætir við sig tveimur þingmönnum í Suðurkjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2007 | 21:40
Þjóðin vill réttlæti
Ákærður fyrir kynferðisbrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2007 | 18:06
Smá svindl
Hér hef ég ákveðið að létta á samviskunni. Ég hef tekið nammidaginn í dag fullalvarlega. Fór nefnilega í ræktina í morgun með mr. Grant og hann sagði að þótt það væri nammidagur þá væri ég svo nýbyrjaður í átakinu að hann gilti bara fyrir kvöldmat. Ég hef náttúrulega svindlað á þessu heldur betur og tekið blessaðan nammidaginn með algjöru trompi. Fékk mér konunglegt morgunkaffi, crossiant með skinku, salami og vel feitum osti og setti svo punktinn yfir i-ið með súkkulaðisnúð úr mosfellsbakarí. Þetta átti að duga fram að kvöldmat en datt óvart inní kaffi til Siggu frænku og tók annan skammt af höfðinglegu kaffihlaðborði sem innihélt m.a. hættulega gómsætt mæjónessalat. Nú er ég að spá hvort það sé ekki í lagi að svindla smá og lengja nammidaginn framyfir kvöldmat, er nautakjöt með smá sósu ekki megrunarfæða?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.4.2007 | 19:47
Fasteignaveislan heldur áfram
Það er mjög ánægjulegt að hagvaxtarskeiðið virðist ekkert vera að brenna út. Við erum að horfa uppá mikla kaupmáttaraukningu síðustu ára og hærri laun skila sér í líflegum fasteignamarkaði. Þetta er merki þess að almennt góðæri ríkir á íslandi. Hvergi í heiminum eiga hlutfallslega jafn margir sitt eigið húsnæði og hérlendis. Innflytjendur hafa góðan aðgang að íslensku íbúðalánakerfi og eykur það veltuna á fasteignamarkaðnum enn frekar. Þetta er bara jákvætt.
179 kaupsamningar þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu 13. - 19. apríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)